|
|
16.01.2012 22:26:31 / hallasg
... sumir dagar þróast þannig að manni finnst maður agnarsmár.... rykkorn í hvolfinu..... dagurinn í dag er svoleiðis.... stundum skilur maður bara ekki neitt í neinu....
Hvíl í friði Steini minn
»
14.02.2011 08:37:59 / hallasg
Þrír menn sátu saman og voru að monta sig af því hvernig þeir höfðu látið nýju konurnar sínar fá skyldur og verkefni heima fyrir. Sá fyrsti hafði gifst konu frá Colarado og hann hafði sagt henni að hún ætti að þvo upp og þrífa húsið. Það tók nokkra daga en á þriðja degi kom hann heim í hreint hús og uppvaskið búið og frágengið. Annar maðurinn hafði gifst konu frá Nebraska. Hann hafði skipað konu sinni að sjá um öll þrif, uppvask og eldamennsku. Fyrsta daginn hafði ekkert gerst, annan daginn hafði það aðeins skánað og þann þriðja var húsið hreint, uppvaskið búið og svaka steik og meðlæti í matinn. Þriðji maðurinn hafði gifst konu frá Íslandi. Hann sagði henni að hennar verk væru að halda húsinu hreinu, sjá um uppvaskið, slá garðinn, þvo þvott og elda heita máltíð í hverjum matmálstíma. Hann sagði að fyrsta daginn hefði hann ekki séð neitt, annan daginn sá hann ekki neitt en á þriðja degi minnkaði bólgan aðeins svo hann sá aðeins með vinstra auganu, nóg svo hann gat útbúið sér eitthvað í gogginn
»
11.02.2011 19:50:57 / hallasg
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum.
Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það). Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því. Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta ; á eftir banananum, tannbursta ... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp....og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus?
Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir... En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
»
11.11.2010 21:59:27 / hallasg
Lok október og nóvember eru brjálaðir afmælismánuðir í okkar fjölskyldu, oft með tilheyrandi veisluhöldum. Núna, 11. nóvember er staðan þessi, við vorum í afmælisveislu hjá tengdamömmu í gær, í kvöld vorum við í tveggja ára Önnu Eir og á morgun á stóra stelpan mín 10 ára afmæli . Það þýðir þá þriðji í afmæli. Nú svo er bekkjarafmæli hjá henni á laugardaginn og svo fjölskylduboð fyrir litlu pattana á sunnudaginn.... Þá verður komið gott, alveg þangað til Una systir á afmæli 20. nóv og svo Helgi bróðir 1.des. Þegar þetta er svo í sama mánuði og jólahlaðborð á velflestum vinnustöðum þá liggur eiginlega í augum uppi að maður hlýtur að enda sem risastór rjómaterta um jólin
Þegar við vorum á leiðinni heim í kvöld frá Önnu Eir vorum við að hlusta á barnarásina og lagið um fullorðna fólkið sem er svo skrítið og er alltaf að skamma mann var í útvarpinu. Krakkagormarnir mínir sátu í aftursætinu og sungu hástöfum með. Og ég meina hástöfum, alveg frá hjartanu og áður en ég vissi af var ég farin að syngja af öllu hjarta með þeim. Og þar sem við sátum á rauðu ljósi og sungum svo hátt að mig var farið að verkja í lungun varð mér litið til hliðar. Þar sat maður og starði furðu lostinn á þetta lið sem söng svo að sennilega nötraði bíllinn örlítið. Hann var sennilega á aldur við mig en ég hugsaði strax; " ahhhaaaa, sko þarna er einn svona "fullorðinn. Sem skilur okkur ekki." Og fékk svona tilfinningu, við og þau hin. Mér finnst nefnilega alltaf að ég sé hálfgerður krakki, ( já, já, kerlingin á fertugsaldrinum) ég er til dæmis ekki ennþá búin að átta mig á hvað ég vill verða þegar ég verð stór, tja nema það að ég er og verð eilífðarvitleysingur og stundum hálfgerð "hamfaragudda". ( útskýrist betur síðar . Svo ég gaf allt í botn þegar það kom grænt ljós og tók hann í "spyrnu" sem hann vissi aldrei að hann væri í . Og krakkagormarnir mínir klöppuðu mér lof í lófa fyrir að vera svona dugleg því ég held að þau viti að það er ekkert grín að "stinga einhvern af" á suzuki baleno. En nota bene, sá ágæti fjallabíll hlýtur nú að vera orðinn endurnýjaður að mestu leiti því að á þessum mánuðum sem við höfum átt hann hefur hann verið svo oft á verkstæði að bifvélavirkinn klappar honum vinalega á húddið þegar við komum með hann og segir :" sæll, vinur". Ég get svarið að bíllinn er örugglega bara að sækja í þessi ástaratlot, ég er ekki nógu duglega að strjúka honum svona. Núna síðast gaf rafgeymirinn sig. Á skítköldum morgni um daginn fór eiginmaðurinn út og setti bílinn í gang fyrir sína ástkæru ( mig sko  ) Bílinn var voða hlýr og notalegur og við Björn Gylfi spíttuðum á leikskólann. Þegar þangað kom drap ég á bílnum eins og lög gera ráð fyrir, og fór með stubbinn og allt heila hafurtaskið hans inn á leikskóla. Þegar ég kom svo aftur út og ætlaði að setja "hans hátign" í gang gerðist ekkert. EKKERT. Bara dauður, alveg stein. Það voru góð ráð dýr, ég hringdi reyndar í eiginmanninn sem sagði mér hátt og snjallt að þetta gæti ekki verið. Ég reyndi aftur, en fékk sömu niðurstöðu, ekkert ! Svo þá var bara að setja upp veiðilegan svip og reyna að finna einhvern með startkapla. Þetta var einn af fyrstu alvöru frostmorgnunum og fólk talaði jú um að það ætti startkapla, en þeir væru í hillu í geymslunni ennþá. Loksins kom einn pabbinn og veifaði mér með köplum mér til mikillar hamingju. Gaf mér start og ég kom í vinnuna, seint meira að segja En þegar þetta endurtók sig nákvæmlega morguninn eftir og bjargvætturinn með kaplana var ekki á svæðinu varð ég að hringja á leigubíl og fá start. Þegar sá ágæti maður leit ofan í húddið á bílnum mínum byrjaði hann á að laga gleraugun sín. Svo pírði hann augun. Svo tók hann af sé gleraugun, þurrkaði af þeim, setti þau aftur á nefið á sér og pírði augun enn meira (þarna var ég að spá í að segja honum að ef hann pírði meira augun þá væru þau alveg lokuð, og hann sæi hvort sem er ekkert en hætti við). Svo hallaði hann sé fram og kinkaði hægt kolli, eins og hann hefði fundið það sem hann leitaði að. Hann leit á mig og sagði með hægð að hann hefði varla séð svona lítinn rafgeymi í bíl, það væri nú líklegra að finna þessa stærð í saumavél. Huhhhh við bíllinn þáðum startið og fórum svo fullkomlega niðurlægð í vinnuna, aftur næstum of seint. Eftir að hafa klagað í manninn minn aftur og verið sagt af honum ( aftur ) að þetta gæti ekki verið að bíllinn hefði ekki farið í gang gafst ég upp. Á mánudaginn var fór eiginmaðurinn svo með mig í bíltúr sem endaði á verkstæði og gamli fékk ný batterí í tikkerinn sinn. Núna er ég eins og greifi, eða mér finnst það allavega, bíllinn minn ríkur alltaf í gang og mér er ekki kalt á tánum með veiðilegan svip á bílastæðinu á leikskólanum, sem mér finnst vera alveg dásamlegt  Fyrir utan það að ég held að löggan hafi verið farin að hafa sérstakt eftirlit með leikskólaplaninu, þeir héldu örugglega að ég væri að leita uppi ólæsta bíla
En nú er þetta orðið ágætt af bulli í bili, ætla að fara að gera afmæliskort fyrir afmælisstelpuna mína fyrir morgundaginn, svo er heljarinnar helgi framundan
p.s. þetta með "hamfaragudduna": í alvöru, ég var spurð í vinnunni um daginn hvort mér hefði dottið í hug að ganga með öryggishjálm, og ein samstarfskona mín fann slíkan handa mér..... loftaþiljur eiga það alveg til að detta þegar ég er einhversstaðar nálægt
kv Hamfaraguddan®
»
28.10.2010 19:55:40 / hallasg
...þetta er dásamlegt, ég þarf bara aðeins að vinna í því að þýða þetta síðar....
After every flight, Qantas pilots fill out a form, called a "gripe sheet" which tells mechanics about problems with the aircraft. The mechanics correct the problems; document their repairs on the form, and then pilots review the gripe sheets before the next flight.
Never let it be said that ground crews lack a sense of humor. Here are some actual maintenance complaints submitted by Qantas pilots (marked with a P) and the solutions recorded (marked with an S) by maintenance engineers.
By the way, Qantas is the only major airline that has never had an accident.
P: Left inside main tire almost needs replacement. S: Almost replaced left inside main tire.
P: Test flight OK, except auto-land very rough. S: Auto-land not installed on this aircraft.
P: Something loose in cockpit. S: Something tightened in cockpit.
P: Dead bugs on windshield. S: Live bugs on back-order.
P: Autopilot in altitude-hold mode produces a 200 feet per minute descent. S: Cannot reproduce problem on ground.
P: Evidence of leak on right main landing gear. S: Evidence removed.
P: DME volume unbelievably loud. S: DME volume set to more believable level.
P: Friction locks cause throttle levers to stick. S: That's what they're for
P: IFF inoperative. S: IFF always inoperative in OFF mode.
P: Suspected crack in windshield. S: Suspect you're right.
P: Number 3 engine missing. S: Engine found on right wing after brief search.
P: Aircraft handles funny. (I love this one!) S: Aircraft warned to straighten up, fly right, and be serious.
P: Target radar hums. S: Reprogrammed target radar with lyrics
P: Mouse in cockpit. S: Cat installed.
And the best one for last.
P: Noise coming from under instrument panel. Sounds like a midget pounding on something with a hammer.
S: Took hammer away from midget
»
21.10.2010 17:53:33 / hallasg
... ég sótti stelpuskottið mitt og vinkonu hennar á skautaæfingu í gær upp í Grafarvog. Og þar sem við erum að keyra heim aftur, við Grafarholtið um klukkan hálfsjö, í algjöru logni og froststillu sjáum við mann í fallhlíf í sólarlaginu.... og þá sagði Sandran mín þessi fleygu orð um leið og hún andvarpaði af öfund: " Ohhhh hvað ég væri til í þetta, að vera bara í friði, ein á flugi með skýjunum." Og ég fylltist stolti yfir því að eiga þessa frábæru stelpu, sem er svo mikill heimspekingur og ævintýrahaus að það hálfa væri dásamlegt. Hún er rosalega mikil félagsvera en stundum þá þarf hún einmitt sinn tíma í að "svífa bara", lesa bækur eða bara hugsa. Hún er svo mikil dís, ég held að hausinn á henni sé stútfullur af skemmtilegum ævintýrum og ég er glöð fyrir hennar hönd Bróðir hennar er auðvitað alveg stórskemmtilegur líka, hann er allur inni á þessu sjónræna, hann situr til dæmis í bílnum og dæsir og andvarpar af hrifningu yfir haustlitunum og fallegum skýjamyndum og litum í sólarlaginu og æpir svo upp yfir sig ef hann sér fallega, gamla bíla. Hann henti sér til dæmis yfir fréttablaðið í gærmorgun af því að hann sá gamlan plymouth sem einhver heiðursmaður hafði gert upp með ærinni fyrirhöfn. Og hann heimtaði að öll greinin yrði lesin fyrir sig þegar hann kom heim um kvöldið. Makalaus, þessi bílaáhugi, hann fékk í alvöru bíladellu þegar hann var 6 mánaða og við komum til Datona í Florida og síðan var ekki aftur snúið
Móðir þessarra barna er aftur á móti furðulegt frík, ég get svo svarið það. Ykkar einlæg fór í vinnuna í morgun, sem er ekki frásögu færandi, nema að þar sem ég keyri eftir Miklubrautinn þá mæti ég bát. Já BÁT, og meira að segja ekkert sérstaklega litlum bát, meira svona grásleppudalli með mastri og öllu. Hann var ábyggilega dreginn af bíl en ég bara tók ekkert eftir því. Það er nefnilega svoleiðis að stundum verða dagarnir svo hver öðrum líkir að það er bara alltaf annaðhvort mánudagur eða föstudagur og vikan þar á milli týnist bara í einhverri rútínu. Þegar ég mætti bátnum í morgun hugsaði ég með mér að þetta væri merki til mín. Nú ætla ég að fara að taka eftir öllum þessu skrítnu og skemmtilegu hlutum allt í kringum mann sem eru örugglega alltaf að gerast en maður leyfir sé ekki að taka eftir. Og ég ætla að njóta þeirra. Kannski ekki allra í botn en mig langar meira að vera þátttakandi í lífinu en áhorfandi. Mig langar að fara á bókasafnið og taka góðar bækur, vel skrifaðar og með fallegum texta ( þó svo að innihald setninganna sé ljótt eins og í megninu af glæpasögunum sem ég les), þar sem maður getur strokið augunum eftir setningunum og rennt þeim inn í heilann. Stundum, þegar ég klára góða bók með flottum texta þá fyllist ég eiginlega eftirsjá, að vera búin með þessa bók og geta ekki upplifað aftur að lesa hana í fyrsta skiptið... en þar eru mistökin, maður getur víst ekki stýrt og hreyfst fram á við ef maður horfir í baksýnisspegilinn, tja allavega ekki vel....
Og matur, hann er ekki bara til að nærast á, hann er eitthvað dásamlegt sem maður á að njóta (ok, ok, ég er ekki að tala um majonessamlokurnar frá Dúmbó eða hvað þetta heitir, ég er að tala um alvöru mat). Bragð, áferð, lykt. Þetta á þó einkum og sér í lagi við um EFTIRRÉTTI. Já, börnin mín, eftirréttir eru TIL ÞESS AÐ NJÓTA ÞEIRRA, sá sem verður staðinn að verki við að gleypa í sig Tiramisu franska súkkulaðiköku eða Créme Brúleee á ekki von á góðu frá mér, ég áskil mér rétt til þess að rassskella ykkur sem standið mér næst ef ég sé til ykkar hahhahah  Og umhverfið, maður þarf að drekka það í sig, það eru fallegir hlutir allstaðar eins og tveir litlir stubbar kenndu mér um daginn eftir að hafa farið á Grandakaffi með mér og Þórhildi vinkonu og fengið þar kleinu, pönnuköku og mjólkurglas með röri og horft á skipin út um gluggann. Núna spyrja þeir mig stundum hvenær við ætlum aftur á fallega kaffihúsið....
núna semsé ætla ég að hætta að "vera bara", ég ætla að LIFA !!
»
20.10.2010 19:11:36 / hallasg
Heimildarritgerð um kýr eftir nemanda á miðstigi grunnskóla.
Nytsemi kýrinnar
Kýrin er húsdýr, en hana má líka finna fyrir utan húsið. Og hún býr oftast í sveitinni en kemur líka inn í bæinn, en bara þegar hún á að deyja. En það ákveður hún...... e...kki sjálf.
Kýrin hefur sjö hliðar, efri hliðina, neðri hliðina, fremri hliðina, aftari hliðina, eina hliðina, hina hliðina og innri hliðina. Á framhliðinni er höfuðið og það er til þess að það sé hægt að festa hornin einhvers staðar. Hornin eru gerð úr horni og þau eru bara skraut. Þau geta ekki hreyft sig en það geta eyrun. Þau eru við hliðina á hornunum. Kýrin hefur tvö göt framan á höfðinu. Þau heita kýr-augu.
Á afturhliðinni er halinn. Hún notar hann til þess að reka í burtu flugur svo að þær detti ekki í mjólkina og drukkni.
Á efri hliðinni og einni hliðinni og hinni hliðinni er bara hár. Það heitir kýr-hár og er alveg eins á litinn og kýrin.
Neðsta hliðin er mikilvægust því að þar hangir mjólkin. Og þegar mjólkurkonan oppnar kranana þá rennur mjólkin út. Þegar það er þrumuveður, verður mjólkin súr, en ég er ekki ennþá búin að læra hvernig það gerist.
Beinin í kúnni heita kú-bein. Það er líka hægt að nota þau til að draga út nagla.
Kýrin borðar ekki svo mikið, en þegar hún gerir það borðar hún alltaf tvisvar. Þegar kúnni er illt í maganum gerir hún ost. Það eru göt í osti. En ég er ekki búin að læra ennþá hvernig hún gerir götin.
Kýrin er með gott lyktarskyn. Við getum fundið lyktina af henni langar leiðir. Hvolpar kýrinnar heita kálfar. Pabbi kálfanna heitir naut og það heitir maður kýrinnar líka. Nautið gefur okkur ekki mjólk og þess vegna er hann ekki spendýr.
Þegar kúnni er slátrað, hella menn mjólkinni í fernur sem maður kaupir í búðinni. Fæturnir fjórir eru sendir til smiðsins. Það heitir endurvinnsla.
Eins og þið sjáið er kýrin nytsamt dýr. Og þess vegna finnst mér mjög vænt um kýrnar.
Athugasemd kennarans: Ég hef aldrei lesið neitt þessu líkt.
»
12.01.2010 18:21:52 / hallasg
Dásamlegt alveg, Nútímabörn og biblíusögurnar !
Ritgerð eftir barn í grunnskóla:
Sá sem hefur orðið frægastur úr Biblíunni er Jesús. Hann var frá Nazaret í Egyptalandi. Hann fæddist á jólanótt í fjósi, vegna þess að öll hótel voru full.
Mamma hans hét María og stjúppabbi hans Jósef.
Hann var ekki raunverulegur pabbi Jesú, því María var áður gift einhverjum Gabríel, en hann var floginn í burtu.
Þegar Jesús var nýfæddur áttu þrír jólaveinar leið fram hjá fjósinu og þegar þeir sáu litla barnið, náðu þeir í nokkrar jólagjafir og reykelsi handa hjónunum, en það veitti sannarlega ekki af þar sem þau höfðu ferðast allan daginn á asna, af því að það átti að telja þau.
Jesús var ekki skírður fyrr en seinna, því í þá daga voru börnin ekki skírð fyrr en þau voru orðin fullorðin og höfðu lært að synda, því þau voru nefnilega alveg færð í kaf.
Þegar Jesús varð átta ára gaf pabbi hans honum Biblíu, og þegar hann var tólf ára kunni hann hana utan að, og það var vel af sér vikið, því í þá daga var Biblían svo stór að það varð að vefja hana upp á kefli.
Jesús gerði mikið fyrir umferðina. Einu sinni þegar hann var á gangi í Jerúsalem, mætti hann lömuðum manni sem lá í rúminu sínu úti á miðri götu. Jesús sagði: "Tak sæng þína og gakk." Maðurinn gerði það og þá gátu bílarnir aftur komist leiðar sinnar...
Það þarf sennilega eitthvað að athuga bækurnar sem blessuð börnin eru að læra af, en sagan var góð...
»
11.01.2010 23:11:41 / hallasg
... gleðilegt ár öllsömul ! Jæja, ég fór nú í og með hérna inn til að athuga hvort ég myndi hvernig innskráningin er... muahhaha eins og sést tókst það. ég hef aftur á móti ekkert skemmtilegt að segja svosem, er bara eiginlega tóm og hugmyndalaus akkúrat eins og er ....
En núna, fyrst að ég sé að ég get allavega ennþá komist hérna inn, hver veit, kannski fer ég að skrifa eitthvað meira
»
21.06.2009 01:03:25 / hallasg
Ég fann þetta á netinu áðan og fannst þetta svooo sjúklega fyndið að ég stal því ! Murphy's Lesser Known Laws 1. Light travels faster than sound. This is why some people appear bright until you hear them speak. 2. Change is inevitable, except from a vending machine. 3. Those who live by the sword---- get shot by those who don't.  4. Nothing is foolproof to a sufficiently talented fool. 5. The 50-50-90 rule: ---Anytime you have a 50-50 chance of getting something right,---- there's a 90% probability you'll get it wrong. 6. If you lined up all the cars in the world end to end, someone would be stupid enough to try to pass them, five or six at a time---- on a hill, ----in the fog. 7. The things that come to those who wait ---- will be the scraggly junk left by those who got there first. 8. The shin bone is a device for finding furniture in a dark room. 9. A fine is a tax for doing wrong. A tax is a fine for doing well. 10. When you go into court, you are putting yourself into the hands of 12 people who---- weren't smart enough to get out of jury duty.
»
30.03.2009 21:20:38 / hallasg
Einhvertíma í fyrndinni las ég leikrit í ensku. Það var eftir Oscar Wilde minnir mig og einn karakterinn var handtaska. Þegar ég var að pilla mig heim í dag varð mér hugsað til þessarar persónu. Ég held nefnilega kannski að mig megi sálgreina eftir innihaldi töskunnar minnar. Maðurinn minn horfir forviða á mig þegar ég sveifla töskunni með tilheyrandi miðflóttarafli upp á öxlina á morgnana (aflið er nauðsynlegt til að taskan drífi alla leið). Hann skilur ekki þetta með töskuna, hvorki stærðina né innihaldið. Hann fattar ekki að ef kreppan eykst og við yrðum nú heimilislaus mætti alltaf koma allri fjölskyldunni ofaní töskuna,ásamt amerískum ísskáp, og jafnvel negla póstkassa utaná hana. Og fá svo bara ruslatunnu fyrir utan.
Ég mætti einum vinnufélaga mínum í eldhúsinu þar sem ég var að snarast út, honum varð litið á töskuna mína og fór eitthvað að hafa orð á innihaldinu. Við komumst að því að sennilega væri þetta gott efni í mannfræðirannsókn. Við minntumst þess bæði að kona hér í bænum framdi rannsókn um daginn á því hvernig konur væru snyrtar að neðan á ýmsum sundstöðum á höfuðborgarsvæðinu. Hún komst að því að "neðanhársnyrting" var hverfisskipt. Hvaða niðurstaða fengist til dæmis ef allar konur týndu allt góssið upp úr töskunum sínum ? Ég ákvað að opna mig og töskuna mína alveg upp á gátt og setja hérna inn hvað er í minni,
taska Höllu 30. mars 2009
- Peningaveski með 500 króna seðli, klinki og debetkorti. Og óteljandi miðum úr búðarferðum
- leðurhanskar, annar með gati við þumalinn
- gsm-síminn minn
- peningaveski Söndru ( geymt hjá mér til að eigandinn eyði ekki peningunum sínum, hún er að safna sér fyrir línuskautum)
- Permanent marker, ( svartur, breiður, úr húsbyggingarkitinu)
- greiðsluseðill fyrir leikskólann fyrir næsta mánuð
- Ipodinn minn ( elska hann út af lífinu)
- grænn mjór borði ( hef ekki hugmynd um af hverju hann er þarna, óskiljanlegt)
- 2 pk Kleenex snýtubréf
- snyrtibudda ( með ótrúlegu magni af dóti sem er næstum aldrei notað hehe)
- 2 gloss ( Halla vinkona væri stolt af mér núna )
- 1 dömubindi
- skinn-inniskór Björns Gylfa
- augndropar
- ilmvatn
- augnhárakrumpari ( vítisvél, ég er ekki að grínast )
- Hárspenna
- sólarpúður
- otrivin mentol nefúði
- hárgums eitthvað til að temja tryllt hár
- tvinnakefli með appelsínugulum tvinna ( sem minnir mig á að ég þarf að stytta gallabuxurnar mínar
- úrið mitt ( ég má ekki vera með það í vinnunni svo það hefur verið ofaní tösku í margar vikur
- 1 rauður penni
- 1 svartur blekpenni
- 1 rauður cars bíll ( lítill og mjög dældaður en það sést vel hvað hann er mikið elskaður og notaður)
- uppskrifablað ( súkkulaðikökuuppskrift öðru megin og brauðbollur með moxarellaosti hinumegin).
- budda með klinki
- 1 stimpill með blómálfi
- astmapúst
- hárklemma
- 1 bolur
- 3 hylki utan af implant
- plástur
- extrapakki ( með 1 tyggjói eftir, svei mér þá, af hverju var það ekki bara borðað síðast)
- 4 skrúfur, 1 nagli og einn reknagli

- miði úr apótekinu í vinnunni.... shit bara nammi á þessum strimli...

- 1 grænn skurðstofumaski
- 1 gul önd, kölluð Gabbaga og er besti vinur Björns Gylfa
- og síðast en ekki síst,
- 1 neongrænn gjafapoki ( af hverju er hann í töskunni minni ? Maðurinn minn var að taka til og tilkynnti að hann vissi ekkert hvar svona væri geymt..... hann stakk því ofan í töskuna....

jæja stelpur, hvað er í ykkar tösku ??
»
03.03.2009 21:35:20 / hallasg
... og það eru sko engar ýkjur. Í gær fór ástkær bíllinn minn, gamli Indíáninn í fóstur til svila míns. Og í staðinn er ég á öðrum jeppa sem í sjálfu sér er lúxusvandamál. Aftur á móti er alvöru vandamálið það að jeppinn minn er semsé í tilvistarkreppu og á í örlitlum vandræðum með sjálfsmynd sína. Hann vill semsé vera bátur og hegðar sér mjög í þá átt.  Við þekkjumst ekki mikið, ég og þessi ágæti bíll, höfum hittst annað slagið í ár og yfirleitt bara svona einn og einn rúnt þegar flytja hefur þurft hluta af búslóðinni ( og ójá, það hefur verið gert nokkrum sinnum á undanförnu ári). Allavega, fótgönguliðinn ( isuzu trooper) er eitthvað hálf óstöðugur á dekkjunum og fjaðrar óheyrilega vel í aðra áttina. Svo þegar svíðingurinn Halla settist undir stýri í morgun og hélt eins og fín kona til vinnu í morgun bjóst ég engan veginn við að þurfa sjóveikistöflur mér til aðstoðar til að komast með morgunkaffið í maganum alla leið niður í vinnu. En, svei ó svei. Við lulluðum okkur af stað úr Grafarvoginum í morguntraffíkinni í morgun í hálku og fíneríi var hann voða falskur við mig fyrst og þóttist vera þægur. Þ.e.a.s. alveg þar til ég þurftir að taka beygju á ljósum hérna rétt hjá. Þá kom fokking (afsakiði orðbragðið ) Titanic eðli hans í ljós.... Bara það eitt að sjá snjóþakinn kant á umferðareyju setti hann alveg upp af standinum og hann byrjaði að dansa á veginum, eins og til að segja; "hjálp, hjálp, ísjaki, ísjaki!" Urrr, mér tókst að hemja hann og þar sem næstu kílómetrar voru beinn kafli var hann til friðs. Alveg þangað til ég þurfti svo að beygja af Miklubrautinni inn á Grensásveginn.... Ég er ekki að ýkja, hann fór, held ég, næstum því að grenja, bölvuð druslan á honum, gekk ferlega undarlega og tilkynnti svo með mjög ákveðnu látbragði að hann væri bátur... og dugga dugg þarna skautaði ég eins og skelfingu lostinn brjálæðingur eftir Grensásstubbnum sem ég þarf að fara þar til ég gat beygt upp í Fellsmúlann... og ég get lofað ykkur því.... á sjónum eru engin svona hvít og fín strik á miðjunni sem segja þér hvar þú átt að sigla.... minn bíll vissi það og duggaði þess vegna bara einhversstaðar, örlítið upp á umferðareyju og þaðan aftur yfir á kantinn hinumegin og svo vííí aftur yfir á eyjuna og svo aðeins að kíkja á hina akreinina... Þarna var sjóriðan farin að gera vel vart við sig hjá bílstóranum/skipstjóranum og ég hékk bara á stýrinu eins og gömul og blaut borðtuska. Þegar við komumst svo inn á bílastæðið í vinnunni og ég læsti skrattakollinum er ég ekki frá því að hann hafi kastað akkerum....ótætið á honum.
»
14.01.2009 20:21:11 / hallasg
... ég er líka á þeirri skoðun að ævinni sé öfugt farið. Þetta væri snilld.
The most unfair thing about life is the way it ends. I mean, life is tough. It takes up a lot of your time. And then you die. What's that? A bonus? I think the life-cycle is all backwards. You should die first and get it all over with. Then you live in an old age home. You get kicked out when you're too young. You get a gold watch. You go to work. You work forty years until you're young enough to enjoy your retirement. You do drugs, alcohol and party. You get ready for high school. You go to grade school and become a kid. You play. You have no responsibilities. You become a little baby & go back into the womb. You spend your last nine months floating... Then, you finish off as an orgasm. I like it.Andy Rooney
eða á íslensku....
Það ósanngjarnasta í öllu lífinu er hvernig það endar. Ég meina, lífið er púl. Það tekur allan þinn tíma. Og svo deyrðu bara. Hvað á það að þýða ? Er það rúsínan í pylsuendanum ? Ég held að lífshlaupið sé alveg öfugt. Þú ættir að byrja lífið á því að deyja og koma því frá. Svo býrðu á elliheimili. Þér er svo sparkað þaðan þegar þú verður of ungur. Þú færð gullúrið. Þú ferð í vinnuna. Þú vinnur baki brotnu í 40 ár þar til að þú ertu nógu ungur til að njóta eftirlaunanna. Þú prófar fíkniefni, drekkur og skemmtir þér. Svo gerirðu þig kláran til að fara í skóla. Þú ferð í grunnskóla og verður barn. Þú leikur þér, berð enga ábyrgð og hefur engar áhyggjur. Svo verðurðu ungarbarn og ferð í móðurkvið. Eyðir síðustu 9 mánuðunum fljótandi... Og svo líkurðu lífinu sem fullnæging. Frábært.
»
11.01.2009 23:48:34 / hallasg
... andsk... kerfi. Nú er ég að reyna að setja "stóra" bloggið inn í 4 sinn. Við skulum vona að þetta lukkist núna, annars gefst ég upp.
Þetta verður bloggið sem heitir vítin til að varast, bara svo að þið eigið möguleika á að gera ekki sömu mistök og ég. Þetta snýr að sjálfsögðu að húsbyggingum og öllu sem því tengist.
Ef þið hafið fengið úthlutað lóð, leitið þá beint til geðlæknis, eða annarra slíkra fagmanna. Geðlæknar eru bestir þar sem þeir geta skrifað upp á lyf sem eru nauðsynleg til að sleppa sæmilega í gegnum ferlið sem nú fer í hönd.
Næst, eftir góðan skammt af taugaslakandi, ásamt góðum kokteil af kæruleysislyfi og hjartastyrkjandi er gott að fara í BYKO og leigja sér plankastrekkjara. Í hann þurfið þið svo að leggjast og láta teygja ykkur og toga í allar áttir. Það er einfaldlega til að auka þanþolið á taugar ykkar, bara svona "til að lina höggið" eða venja ykkur við það sem koma skal.
Þar næst þufiði að kaupa málningarhrærara til að festa framaná borvél og gúmmísleggju. Sleggjan notast til að lumbra á sjálfum sér í tíma og ótíma fyrir ótrúlega vitlausar hugmyndir. Málningarhræran nýtist síðar....
Nú er komið að veigamiklu atriði. Að finna fagmenn til að vinna verkin. Jahá, gúdd lökk segi ég nú bara. Þetta er bara svona eins og með veðrið, þetta skref byggist á heppni, meira en öðru, ég get lofað því. Það er eiginlega alveg óhætt að sleppa því að spekúlera í fyrri verkum þessara manna, annað hvort hafa þeir þetta í sér, eru þrælduglegir, skynsamir, heiðarlegir, útsjónasamir og vandvirkir EÐA EKKI. ( Við héldum að við værum svo varkár og vandvirk, skoðuðum verk sem þessir dúddar höfðu gert, arkitektinn, verkfræðingarnir og verktakin. Önnur verk litu vel út, það vantaði ekki, við klikkuðum einfaldlega á að tala við einhverja sem höfðu keypt af þeim verkin !!) 
No. 1. Ekki velja arkitekt, veljiði byggingatæknifræðing. Með því spariði ykkur nefnilega mikilvægt atriði. Arkitekt teiknar eitthvað, hann segir ekkert um hvort að hluturinn er framkvæmanlegur í raunheimi, hvorki byggingafræðilega né kostnaðarlega séð. En þetta er örugglega allt hægt í MATRIX. Og annað sem er óumflýjanlegt ef arkitekt er valin eru verkfræðingar til að reikna úr burðarþol. Þeir sem við fengum höfðu sennilega orðið fyrir einhverskonar óhappi við að klóra sér í eyranu með borvél því að önnur eins ólukka og ótrúlegir útreikningar hafa ekki orðið til síðan ég var í stærðfræði hérna í gamla daga.
Byggingatæknifræðingurinn teiknar hins vegar hagkvæmt, einfaldari stíl, minni krúsídúllur og þar af leiðandi hagstæðara fyrir bankabókina og það sem meira er, hann veit nákvæmlega hvað er framkvæmanlegt burðarþolslega séð. Á endanum sennilega 3svar sinnum fljótlegar en hin leiðin, fyrir utan að vera ódýrari.
Nú svo er komið að því að velja hvort að húskofinn á að vera staðsteyptur eða í forsteyptum einingum. Ég hef ekkert vit á því, við erum með einingar, voða fljótlegt.... EF ÞÚ ERT EKKI MEÐ GÚBBÍFISK að setja það upp... urrrrrrr.
Nú svo er komið að pípara og rafvirkja, mjög mikilvægir póstar, og þá mjög mikilvægt að hvorugur sé að flytja úr landi áður en verkinu er lokið....say no more.
nei svona án gríns, eftir prósess sem hófst þegar ég var ólétt af stráknum, þá sátum við í nokkur skipti hjá arkitektinum, og þangað til núna er húsið ekki almennilega klárt. Við erum búin að gefast upp á iðnaðarmönnunum okkar, og erum núna með góðri aðstoð allra verkfærra einstaklinga í fjölskyldunni að komast á lokastig á neðri hæðinni.... bráðum. Strákurinn, sem var ófæddur þegar þessar setur voru hjá arkitektinum verður 3. ÁRA 4 febrúar hehehhe..... vívívívívív´viííííí á einhver VALÍUM ????
»
09.01.2009 09:18:57 / hallasg
... meira seinna í dag !
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
Heimsóknir
Í dag: 20 Alls: 69918
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 16 janúar
|